Psalms 92

1Gott er að lofa Drottin og lofsyngja nafni þínu, þú Hinn hæsti, 2að kunngjöra miskunn þína að morgni og trúfesti þína um nætur 3á tístrengjað hljóðfæri og hörpu með strengjaleik gígjunnar. 4Þú hefir glatt mig, Drottinn, með dáð þinni, yfir handaverkum þínum fagna ég. 5Hversu mikil eru verk þín, Drottinn, harla djúpar hugsanir þínar. 6Fíflið eitt skilur eigi, og fáráðlingurinn einn skynjar eigi þetta. 7Þegar óguðlegir greru sem gras og allir illgjörðamennirnir blómguðust, þá var það til þess að þeir skyldu afmáðir verða að eilífu, 8en þú sem ert á hæðum, ert til að eilífu, Drottinn. 9Því sjá, óvinir þínir, Drottinn, því sjá, óvinir þínir farast, allir illgjörðamennirnir tvístrast. 10En mig lætur þú bera hornið hátt eins og vísundinn, mig hressir þú með ferskri olíu. 11Auga mitt lítur með gleði á fjandmenn mína, eyra mitt heyrir með gleði um níðingana, er rísa gegn mér. 12Hinir réttlátu gróa sem pálminn, vaxa sem sedrustréð á Líbanon. 13Þeir eru gróðursettir í húsi Drottins, gróa í forgörðum Guðs vors. 14Jafnvel í hárri elli bera þeir ávöxt, þeir eru safamiklir og grænir. 15Þeir kunngjöra, að Drottinn er réttlátur, klettur minn, sem ekkert ranglæti er hjá.
Copyright information for Icelandic